Tix.is

Um viðburðinn

Chino og Victor Puertas eru nú komnir til Íslands í fyrsta skipti!

Þessir frábæru tónlistarmenn eru tvö af þekktustu nöfnunum í blússenunni í Barcelona þar sem þeir eru búsettir og hafa komið fram saman í Bandaríkjunum, Rússlandi, Bretlandi, Argentínu, Austurríki, Frakklandi, Ítalíu, Danmörku, Finnlandi og Noregi.

Árið 2013 hlaut Chino, ásamt hljómsveit sinni „Big Bet", önnur verðlaun á The European Blues Challenge sem haldin var í Toulouse í Frakklandi. Sama ár vann Victor Puertas, ásamt bróður sínum Santos Puertas (The Suitcase Brothers) einnig til annarra verðlauna á The International Blues Challenge í Memphis, Tennessee.

Saman spila þeir blús eins og hann gerist bestur og sem mun hrista upp í hverjum sem er.

Ekki láta þetta framhjá þér fara!