Tix.is

Um viðburðinn

Helena mun flytja lög af nýjum sólódiski sínum, sem ber nafnið „Helena“ og kom út fyrir síðustu jól, auk fleiri laga sem fylgt hafa henni í gegn um árin. Sérstakur gestur á tónleikunum verður söngkonan Sigríður Eyrún Friðriksdóttir og hljómsveitina skipa þeir Karl Olgeirsson á píanó og hljómborð, Stefán Már Magnússon á gítar, Sigurður Flosason á saxófón og slagverk, Jón Rafnsson á bassa og Benedikt Brynleifsson á trommur.