Myndin greinir frá stúlku sem vinnur fyrir sér með logsuðustörfum á daginn en dreymir um að verða atvinnudansari. Til að koma fólki í rétta gírinn þá hvetjum við fólk til að mæta í 80s gallanum og syngja með. Allir dansunnendur og Flashdance aðdáendur ættu að fjölmenna föstudagspartísýningu, 30. júní kl 20:00!
Tvö lög úr myndinni urðu mjög vinsæl, titillag myndarinnar What a feeling eftir Irene Cara, en lagið hlaut Óskarsverðlaunin og Golden Globe verðlaunin. Hitt lagið, Maniac, eftir Michael Sembello var tilnefnt til Óskarsverðlaunana. Skemmst er frá því að segja að Jennifer Beals naut aðstoðar annarra dansara (body- double) í flestöllum dansatriðunum.
Tilboð verða á barnum, ekki missa af þessari stórskemmtilegu mynd, í Bíó Paradís!