Heimsmeistaramót kvenna í 2. deild í íshokkí verður haldið í Skautahöllinni á Akureyri 27. febrúar til 5. mars 2017. Þátttökuþjóðir eru auk Íslands, Spánn, Tyrkland, Rúmenía, Nýja Sjáland og Mexico.
Aldrei áður hefur slíkt mót verið haldið á Akureyri og eigum við von á æsispennandi móti . Stelpurnar okkar mæta einbeittar til leiks og reiðubúnar að leggja allt í sölurnar og sanna fyrir öllum heiminum að þær ætli sér að vinna mótið og koma sér í næsta styrkleikaflokk.
Það er gríðarlega mikilvægt að stelpurnar okkar fái góðan stuðningu úr stúkunni og hvetjum við alla að tryggja sér miða í tíma og mælum við með mótspassa sem gildir á alla leiki mótsins.
Allur hagnaður miðasölu verður notaður í uppbyggingu kvenna íshokkí á Íslandi.
Miðasala fyrir stuðningsmenn íslenska liðsins fer hér fram á tix.is.
Happadrætti, dregið verður úr seldum miðum og hlýtur vinningsaðilinn landsliðstreyju frá stelpunum okkar.
Dagskrá heimsmeistaramóts kvenna 2017:
Mánudagur 27. febrúar
13:00 Tyrkland - Nýja Sjáland
16:30 Mexico - Spánn
20:00 Ísland - Rúmenía
Þriðjudagur 28. febrúar
13:00 Spánn - Nýja Sjáland
16:30 Rúmenía - Tyrkland
20:00 Ísland - Mexico
Fimmtudagur 2. mars
13:00 Spánn - Rúmenía
16:30 Mexico - Nýja Sjáland
20:00 Ísland - Tyrkland
Föstudagur 3. mars
13:00 Rúmenía - Mexico
16:30 Tyrkland - Spánn
20:00 Nýja Sjáland - Ísland
Sunnudagur 5. mars
13:00 Mexico - Tyrkland
16:30 Nýja Sjáland - Rúmenía
20:00 Spánn - Ísland
Miðaverð
1.500 kr. á hvern leik sem íslenska liðið spilar, fyrir 17 ára og eldri.
Mótspassi sem gildir á alla leikina 5.000 kr.
Ókeypis fyrir 16 ára og yngri.