Tix.is

Um viðburðinn

Músíktilraunir er tónlistarhátíð sem stendur yfir í 5 daga. Hátíðin á sér yfir 30 ára sögu en fyrstu tilraunirnar fóru fram árið 1982. Ungmenni á aldrinum 13-25 ára geta sótt um þátttöku með því að senda inn umsókn á heimasíðu tilraunanna og greiða þátttökugjald. Undankvöldin eru fjögur þar sem u.þ.b. 40 hljómsveitir keppa að því takmarki að komast áfram á úrslitakvöldið.

Um 10-12 hljómsveitir komast í úrslit og hljóta efstu þrjár sveitirnar glæsileg verðlaun. Efnilegustu hljóðfæraleikararnir eru einnig valdir af dómnefnd en áhorfendur velja vinsælustu hljómsveitina með símakosningu. Undanfarin ár hefur úrslitakvöldinu verið útvarpað um land allt af Rás 2 og árið 2016 hóf Ríkissjónvarpið að streyma úrslitakvöldinu í beinni útsendingu á www.ruv.is.

Músíktilraunirnar veita frábært tækifæri til þess að fylgjast með grasrótinni í íslensku tónlistarlífi og hafa hljómsveitir á borð við Of Monsters and Men, Samaris, Vök og Vio borið sigur úr bítum undanfarin ár.

Undankvöldin verða 25- 28.mars 2017 kl.19:30 og er miðaverð á hvert undankvöld 1500 kr.

Úrslitakvöldið er haldið 1.apríl kl. 17:00 og er miðaverð 2000 kr.

Nánari upplýsingar er að finna á: Músíktilraunir og Facebook

Icelandair er aðalbakhjarl Músíktilrauna.