Tix.is

Um viðburðinn

Lion fjallar um hinn fimm ára gamla Saroo sem týnist í lest á leið í burtu frá heimili sínu. Hann er bæði hræddur, þúsundir kílómetra í burtu frá fjölskyldu sinni og ráðvilltur á götum Kolkataborgar. Honum tekst að lifa af margar hremmingar, heimilislaus á götunni, áður en hann fær pláss á munaðarleysingjahæli, sem er þó ekki öruggasti staðurinn til að vera á. Að lokum er Saroo ættleiddur af áströlsku pari sem taka á móti honum með ást og umhyggju. Hann bælir niður minningar sínar úr fortíðinni og vonina um að finna móður sína og bróður á ný af ótta við að særa tilfinningar nýju foreldra sinna. En þegar hann hittir nokkra Indverja fyrir tilviljun vaknar þráin á ný. Fáar æskuminningar sitja eftir í huga hans en með hjálp nýrrar tækni sem kallast Google Earth leggur hann af stað í leitina að nálinni í heystakkinum.

Myndin er byggð á bókinni The Long Way Home sem Saroo skrifaði sjálfur eftir reynslu sína en hún vakti mjög mikla athygli og umtal í Ástralíu og á Indlandi. Með þessari mynd er ótrúleg saga hans nú óðum að verða flestum í öðrum heimshlutum kunn. Lion  hefur að undanförnu verið sýnd á kvikmyndahátíðum og hlotið góða dóma gagnrýnenda og áhorfenda. Hún þykir ákaflega vel gerð og leikin og alveg gríðarlega áhrifamikil á allan hátt.

Myndin er að öllu leyti tekin þar sem sagan gerist, þ.e. í Ástralíu og Tasmaníu og við staði á Indlandi sem leit Saroos leiddi hann til.