Tix.is

Um viðburðinn

Mugison snýr aftur í Hljómahöll og að þessu sinni í Stapa með hljómsveit! Síðast seldist upp á örfáum klukkustundum!!

Miðaverð er 4.500 kr. og nýji diskurinn fylgir með!

Mugison, sem þarf vart að kynna, kemur fram á tónleikum í Stapa í Hljómahöll þann 3. desember. Hann verður með fullt band með sér og lofar góðu sprelli, eins og honum einum er lagið.

Mugison hefur sama og ekkert spilað á Suðurnesjum í dágóðan tíma en hélt þó eina tónleika í Bergi í Hljómahöll í nóvember á síðasta ári en miðarnir seldust upp á örfáum klukkutímum.

Mugison gaf út plötuna Haglél sem setti sölumet árið 2011 og seldist í tugþúsundatali. Platan var sú fyrsta hjá honum sem var alfarið sungin á íslensku. Nýja platan hans er nýkomin út og fá allir tónleikagestir eintak af plötunni!

Afrek hans eru óteljandi en á meðal þess sem hann hefur gert í gegnum tíðina er að standa fyrir tónlistarhátíðinni Aldrei fór ég suður á Ísafirði sem haldin er hverja páska, hefur spilað á einum stærstu tónlistarhátíðum heims s.s. Hróarskeldu, verið valinn Vestfirðingur ársins oftar en einu sinni og þannig mætti lengi telja.

Tónleikarnir hjá Mugison hefjast kl. 21:00 og húsið opnar 20:00.