Tix.is

Um viðburðinn

SALA Í FULLUM GANGI - UPPSELT Í VIP!

ScHoolboy Q, einn vinsælasti rappari samtímans stígur á stokk í Valshöll á laugardag.

Tveir af heitustu tónlistarmönnum þjóðarinnar þessa dagana hafa verið valdir til að hita upp; Emmsjé Gauti og Aron Can og nú hafa SXSXSX bæst í hópinn. Það er því ljóst að það stefnir í ógleymanlegt kvöld.

21.00 - Húsið opnar
21.30 - SXSXSX - DJ upphitun
22.00 - Aron Can
22.20 - Emmsjé Gauti
23.05 - DJ Mackwop
23.15 - SCHOOLBOY Q
00.35 - Áætlaður endir*

* Með fyrirvara um breytingar, dagskráin getur riðlast.

GAGNLEGAR UPPLÝSINGAR

- Tix verður með afgreiðslu miða frá kl. 16 á laugardag í Valshöll.
- Ekkert aldurstakmark er á tónleikana.
- Áfengi verður eingöngu selt á afmörkuðum svæðum og er 20 ára aldurstakmark inn á þau svæði. Skilríkja krafist.
- 20 ára aldurstakmark er í VIP stúkuna. (Uppselt er í hana.)
- Ölvun gesta undir 20 ára aldri ógildir miðann.
- Aðstaða verður fyrir hjólastóla, gæsla vísar veginn.
- Fatahengi verður á staðnum.
- Pizzusneiðar og óáfengir drykkir verða seldir á opnum svæðum.