Tix.is

Um viðburðinn

Uppselt er á tónleikana en við bendum þeim sem vilja styrkja Stefán og fjölskyldu á sérstakan reikning: 

0301-26-1909, kt. 710269-2709

Okkar ástsæli og dýrmæti leikari, Stefán Karl Stefánsson, glímir nú við erfið veikindi sem kalla á kostnaðarsamar aðgerðir og meðferðir með tilheyrandi vinnutapi og fjárhagsáhyggjum. Við, samstarfsfólk hans og vinir, höfum tekið okkur saman um að halda þessa styrktatónleika fyrir hann og fjölskyldu hans. Stefán Karl er þjóðargersemi og mikilvægt fyrir okkur öll að hann geti áhyggjulaus einbeitt sér að því að ná heilsu á ný.

Eftirfarandi listamenn koma fram:
Bubbi Morthens
Ný dönsk
Úlfur Úlfur
Salka Sól
Laddi
Gói
Hansa og Selma
Jón Ólafsson
Valgeir Guðjónsson
Stuðmenn

Kynnir: Edda Björgvinsdóttir