Tix.is

Um viðburðinn

Tríó Agnars Más Magnússonar

Tríó Agnars Más Magnússonar opnar spennandi haustdagskrá Jazzklúbbsins Múlans með tónleikum á Björtuloftum í Hörpu. Leikin verður ný og eldri frumsamin verk eftir Agnar, meðal annars af nýútkomnum geisladiski sem nefnist Svif sem hlotið hefur lofsamlega dóma. Meðlimir tríósins auk Angars eru Scott McLemore trommuleikari og Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson bassaleikari. Svif er fyrsti trio diskur Agnars í 7 ár en síðast kom út Kvika árið 2009. Áður hafa komið út 01 og Láð, en einnig hefur Agnar gefið frá sér Hyl sem er einleiksspunaverk.