Tix.is

Um viðburðinn

Sívinsæl aðventusýning sextánda árið í röð.

Grímuverðlaunasýningin Leitin að jólunum hefur verið sýnd á aðventunni við miklar vinsældir allt frá því hún var frumsýnd árið 2005. Verkið verður nú sýnt  sextánda leikárið í röð og eru sýningar yfir þriðja hundraðið.

 Tveir skrýtnir og skemmtilegir náungar taka á móti litlum leikhúsgestum í anddyri Þjóðleikhússins. Með þeim í för eru tveir hljóðfæraleikarar og þessi fjörugi hópur leiðir börnin með leik og söng um leikhúsið. Börnin ferðast inn í ævintýraveröld jólanna og sjá leikþætti um jólin í gamla daga og á okkar tímum.