Á hátíðlegum nótum – Jólatónleikar Siggu Beinteins
Hinir árlegu jólatónleikar Siggu verða haldnir í Eldborgarsal Hörpu 9. og 10. desember. Þetta er áttunda árið sem Sigga heldur sína eigin jólatónleika og þriðja árið í röð sem þeir verða haldnir í Eldborgarsal Hörpu.
Fyrir jólin 2015 var uppselt á tvenna ógleymanlega jólatónleika Siggu í Eldborg, en kvöldin voru sem töfrum líkust og stemningin sem myndaðist í salnum lét engan ósnortinn, enda lagavalið sambland af klassískum jólalögum, hressum poppjólalögum og mögnuðum ballöðum sem spiluðu á allan tilfinningaskala tónleikagesta. Umgjörðin utan um tónleikana var einkar falleg þar sem jólatré og falleg grafík spiluðu stóran þátt í að gera tónleikana bæði hlýlega, hátíðlega og afar eftirminnilega.
Með Siggu koma fram góðir gestir ásamt landsliði tónlistarmanna og tónninn sem gefinn er er einlægur og hlýr - eins og Sigga sjálf.
Sérstakir gestir / Guests
Páll Óskar
Egill Ólafsson
Greta Salóme
Hljóðfæraleikarar / Band
Benedikt Brynleifsson á trommur / slagverk
Friðrik Karlsson á gítar
Ingvar Alfreðsson á pianó / hljómborð
Róbert Þórhallsson á bassa
Stefán Örn Gunnlaugsson á hljómborð
Matthías Stefánsson á fiðlu og gítar
Bakraddir / Backing vocals
Alma Rut Kristjánsdóttir
Gísli Magna Sigríðarson
Ína Valgerður Pétursdóttir.