Tix.is

Um viðburðinn

Tvær nafnlausar hljómsveitir koma fram í Hörpu 10. desember. Margir kannast við sveitina Vaginaboys en hún hefur náð miklum vinsældum síðan þeir gáfu út sitt fyrsta lag „Elskan af því bara“ fyrir nokkru. Meðlimir eru nafnlausir og grímuklæddir þegar þeir koma fram og hafa þeir gert það á öllum helstu tónlistarhátíðum landsins við góðar undirtektir.

Hljómsveitin kef LAVÍK frá Höfn kemur einnig fram á sínum fyrstu tónleikum. Þeir gáfu út sitt fyrsta lag „Í sjálfum mér“ árið 2013 og hafa margir beðir spenntir eftir tónleikum sveitarinnar. Nú er stundin loksins runnin upp og koma þeir fram í Hörpu á sínum fyrstu tónleikum.

Sveitirnar heita góðu stuði.