Þýska hljómsveitin Strom & Wasser leikur á tónleikum í Kaldalóni, Tónlistarhúsinu Hörpu 13. september kl. 21:00 í boði Heimstónlistarklúbbsins og Jazzklúbbsins Múlans.
Forsprakki sveitarinnar er ljóðskáldið, tónlistarmaðurinn og aktívistinn Heinz Ratz en hann er löngu kunnur og margverðlaunaður í heimalandi sínu. Fyrr á árinu kom út geisladiskur hjá útgáfunni Traumton í Berlín. Fjölmargir íslenskir tónlistarmenn tóku þátt í verkefninu sem ber heitið Reykjavik Projekt. Á disknum er tónlistararfur Evrópu tekinn fyrir. Ska-pönki, rappi, tataraskölum, dýraköllum, tónlist austur-kirkjunnar, balkönskum dönsum, íslenskum stemmum er hrist saman í hressilegan kokkteil. Hljómsveitin hefur þegar leikið töluvert af tónleikum í Þýskalandi en kemur nú fram í fyrsta skipti í Reykjavík.
Fram koma : Heinz Ratz, Ingo Hassenstein, Burkhard Ruppaner, Enno Dugnus, Luca Seitz og gestirnir Egill Ólafsson, Ragnheiður Gröndal og Haukur Gröndal