Tix.is

Um viðburðinn

Mannakorn

Mannakorn er ein ástsælasta hljómsveit landsins og listinn yfir lög hennar sem allir þekkja ansi langur. Flestir geta raulað með sígildum slögurum á borð við Ó þú, Reyndu aftur, Braggablús, Einhvers staðar einhvern tímann aftur, Gamli góði vinur, Sölvi Helgason, Gamli skólinn, Garún, Lifði og dó í Reykjavík og Samferða.

Hljómsveitin kemur nú fram í Eldborgarsal Hörpu í fyrsta sinn og verða þau Ellen, Maggi og Pálmi öll á sínum stað. 

Hljómsveitinni til halds og trausts verður strengja– og blásturssveit sem mun gæða öll bestu lög Mannakorna einstökum blæ. 

Ekki missa af þessum einstaka viðburði.