Tix.is

Um viðburðinn

Vísindasýning Villa er fróðleg, spennandi og stórskemmtileg sýning fyrir alla fjölskylduna!

FERÐALAG UM TÖFRAHEIM VÍSINDANNA FYRIR BÖRN?Á ÖLLUM ALDRI

Villi og Vala bregða á leik með tilraunaglösin sín á litla sviði Borgarleikhússins og gera ótrúlegar uppgötvanir og útskýra fyrir okkur mögnuð fyrirbæri úr heimi vísindanna. Hvað er rafmagn? Hvað er hljóð? Hvað er blóð og bein? Öll börn þekkja Vísinda-Villa og uppátæki hans í sjónvarpinu. Villi hefur oft bjargað sjálfum sér og vinum sínum úr vanda með alls konar uppfinningum enda hefur hann brennandi áhuga á vísindum. Uppáhaldsspurningin hans er: „Af hverju?“ Nú stígur Vísinda-Villi á svið Borgarleikhússins í fyrsta sinn og fer með áhorfendur í æsispennandi ferðalag um heim vísindanna. Með honum er hún Vala sem hefur ráð undir rifi hverju og fer létt með að leysa óyfirstíganleg vandamál. Ekkert er þeim óviðkomandi hvort sem um er að ræða svarthol, atóm, köngulær, tré, blóð, heimspeki eða stjörnuhiminn svo eitthvað sé nefnt. Þau gera tilraunir og útskýra hluti, fá út óvæntar niðurstöður og spyrja spurninga sem engum hefði dottið í hug að spyrja - hvað þá að fá svör við!

Höfundar: Vilhelm Anton Jónsson og Vignir Rafn Valþórsson

Leikstjórn: Vignir Rafn Valþórsson
Leikmynd og búningar: Sigríður Sunna Reynisdóttir
Lýsing: Magnús Helgi Kristjánsson
Tónlist: Vilhelm Anton Jónsson
Leikgervi: Margrét Benediktsdóttir
Hljóð: Garðar Borgþórsson

Leikarar: Vala Kristín Eiríksdóttir, Vilhelm Anton Jónsson