Tix.is

Um viðburðinn

Óborganlegt leikrit eftir Ray Cooney konung gamanleikjanna

SÝNING SEM ÞENUR HLÁTURTAUGARNAR!

Úti að aka er gamanleikur eins og þeir gerast bestir. Jón Jónsson, leigubílstjóri, er ekki?allur þar sem hann er séður; hann á tvær eiginkonur, þær Guðrúnu í Hafnarfirði og Helgu í Mosfellsbæ. Guðrún veit ekki af Helgu og Helga hefur ekki hugmynd um Guðrúnu?og Jón brunar sæll og glaður milli bæjarfélaga til að sinna báðum heimilum. En Adam var ekki lengi í Paradís! Börnin hans, af sitt hvoru hjónabandinu, kynnast fyrir slysni á Facebook og plana stefnumót. Til að afstýra stórslysi kokkar Jón upp fjarstæðukenndan lygavef þar sem enginn veit lengur hvað snýr upp og hvað niður. Á endanum er ekki ljóst hver hefur leikið á hvern eða hver er í rauninni úti að aka.

Höfundurinn Ray Cooney er farsælasta gamanleikjaskáld samtímans. Borgarleikhúsið hefur áður sýnt verk hans við gríðarlegar vinsældir og metaðsókn, Viltu finna milljón, Nei, ráðherra! og Beint í æð! Gísli Rúnar Jónsson íslenskaði og staðfærði öll verkin?við afbragðs viðtökur. Í Úti að aka er einvala hópur leikara undir stjórn Magnúsar Geirs Þórðarsonar.

Höfundur: Ray Cooney?Íslensk heimfærsla: Gísli Rúnar Jónsson

Leikstjórn: Magnús Geir Þórðarson
Leikmynd og búningar: Snorri Freyr Hilmarsson
Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson
Leikgervi: Margrét Benediktsdóttir
Hljóð: Ólafur Örn Thoroddsen

Leikarar: Bergur Þór Ingólfsson, Elma Stefanía Ágústsdóttir, Halldór Gylfason, Halldóra Geirharðsdóttir, Hilmir Snær Guðnason, Hilmar Guðjónsson, Ilmur Kristjánsdóttir