Tix.is

Um viðburðinn

Þegar öllu er á botninn hvolft þá er lí ð þó umfram allt salt skur en ekki draumaringl

ÁSTIR, DRAUMAR, ÁDEILA

Salka Valka er ein þekktasta saga Halldórs Laxness og sú sem ruddi braut hans til alþjóðlegra vinsælda. Hún er hetjusaga ungrar stúlku sem brýst frá fátækt og fáfræði og nær að verða mikils metinn þjóðfélagsþegn af eigin rammleik með seiglu og einbeittum vilja. Sagan gerist á Óseyri við Axlarfjörð en þangað flytja mæðgurnar Sigurlína og Salka. Salka litla er stolt og sterk en Sigurlína móðir hennar treystir alfarið á himnaföðurinn og Hjálpræðisherinn. Örlög fólksins á Óseyri eru að mestu á valdi kaupmannsins Jóhanns Bogesen en átakatímar fara í hönd og nýir vindar blása um þjóðfélagið. Áhrifavaldar í lífi mæðgnanna eru aðallega hinn ungi og mælski Arnaldur og Steinþór sem er alger andstæða hans; uppfullur af frumkrafti sem bæði skelfir og heillar. Uppfærsla Yönu Ross varpar nýju og óvæntu ljósi á eina af þekktustu sögum Halldórs Laxness. Úr verður spennandi ferðalag?á vit Sölku Völku í fortíð og nútíð. Yana Ross leikstýrði rómaðri sýningu?á Mávinum á síðasta leikári og er að verða með eftirsóttari leikstjórum í Evrópu - Salka Guðmundsdóttir er eitt efnilegasta leikskáld þjóðarinnar. Þær leiða saman hesta sína?í nýrri leikgerð að Sölku Völku.

Höfundur: Halldór Laxness

Leikgerð: Yana Ross?og Salka Guðmundsdóttir?Leikstjórn: Yana Ross?Leikmynd: Michal Korchowiec Búningar: Filippía I. Elísdóttir?Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson Tónlist: Baldvin Þór Magnússon Leikgervi: Árdís Bjarnþórsdóttir?Hljóð: Baldvin Þór Magnússon Myndband: Algirdas Gradauskas Aðstoðarleikstjórn: Hlynur Páll Pálsson

Leikarar: Björn Stefánsson, Björn Thors, Halldóra Geirharðsdóttir, Hilmar Guðjónsson, Hilmir Snær Guðnason, Jóhann Sigurðarson, Ólafur Darri Ólafsson, Sigrún Edda Björnsdóttir, Unnur Ösp Stefánsdóttir, Þórunn Arna Kristjánsdóttir, Þuríður Blær Jóhannsdóttir