Tix.is

Um viðburðinn

Miðar seldir á tix.is á PJ Harvey eru nú uppseldir en miðahafar Iceland Airwaves hafa tækifæri til að nálgast miða á föstudaginn kl. 12:00 í Media Center í Hörpu.

PJ Harvey mun ásamt fleiri listamönnum loka Iceland Airwaves tónlistarhátíðinni sunnudaginn 6. nóvember í Valsheimilinu að Hlíðarenda. Takmarkað magn miða er nú sett í umferð fyrir þá sem vilja tryggja sér miða á þennan viðburð!

Þessir tónleikar Iceland Airwaves eru eitthvað sem enginn tónlistarunnandi má láta framhjá sér fara en engu verður til sparað í uppsetningu og umgjörð lokatónleikanna.

Almennur Iceland Airwaves miði veitir aðgang að lokatónleikunum með sama hætti og á aðra tónleika hátíðarinnar en takmarkað magn af miðum verður í boði. Miðunum verður dreift til miðahafa Iceland Airwaves án endurgjalds föstudaginn 4. nóvember kl. 12 í Hörpu eftir „fyrstur kemur, fyrstur fær“ reglunni. Eitt armband = einn miði.