Tix.is

Um viðburðinn

Langar þig ekki heim eftir að dagskránni líkur ? Secret Solstice stendur fyrir Horizon 2016 að lokinni aðaldagskrá hátíðarinnar á fimmtudag, föstudag og laugardag. Partýið fer fram á leynistað með náttúrulaug rétt utan Reykjavíkur og lofum við að halda þér dansandi langt framundir morgun.

Brottför er frá Secret Solstice hátíðarsvæðinu rétt fyrir miðnætti. Aðeins 200 gestir komast að í þetta einastaka tækifæri til að skemmta sér í miðnætursólinni með nokkrum af heitustu plötusnúðum í heimi sem lofa ótrúlegri stemningu og enn betri tónlist.

Dagskrá
FIMMTUDAGUR 16. JÚNÍ: GUY GERBER, SERGE DEVANT + LEYNIGESTUR
FÖSTUDAGUR 17. JÚNÍ: RYAN CROSSON, NITIN + LEYNIGESTUR
LAUGARDAGUR 18. JÚNÍ: SKREAM, ARTWORK, BENSOL + LEYNIGESTUR

Ekki er nauðsynlegt að vera með Secret Solstice hátíðarpassa til að fá aðgang í Horizon Partýin en þau eru ekki innifalin í aðaldagskránni.

Upplýsingar um brottför og komur: Rútur leggja af stað frá Secret Solstice hátíðarsvæðinu stundvíslega kl. 23:45 öll kvöldin.

ATHUGIÐ: Þar sem staðsetningin í Horizon Partýið er leynileg er mjög mikilvægt að mæta tímanlega á brottfarasvæðið þar sem ekki er boðið upp á endurgreiðslu fyrir þá sem missa af rútunni.