Tix.is

Um viðburðinn

Um er að ræða stærsta viðburð ársins hjá Íþróttafélaginu Gerplu. Í ár þá munum við setja upp 45 ára afmælissýningu félagsins og mun fara fram í formi samstarfsverkefnis við Kór Kársnesskóla og Skólahljómsveitar Kópavogs. Úr verður glæsileg tónlistar- og íþróttahátíð þar sem leiksýning Ávaxtakörfunnar verður sett upp. Ávaxtakarfan er með góðan boðskap sem er vel til þess fallinn að framkalla skemmtilega barna- og fjölskylduskemmtun, með fallegum fimleikum, söng og tónlist.