Tix.is

Um viðburðinn

Bank, bank. Hver er þar? Moses Hightower. Moses Hightower hver? Moses Hightower sem ætlar að halda tónleika á Húrra þann 1. júní.

Já, þú last rétt. Þetta er fágætt tækifæri til þess að heyra, í góðum félagsskap, ólgandi glóðvolg lög á borð við Snefil, Feikn, Fjallaloft... Bíddu, bank, bank, Fjallaloft hvað? Jú, bara ein leið til að komast að því: Vertu Siggi Sveins reykvísks tónlistarlífs, drífðu þig á tix.is og smelltu þér á miða áður en þeir klárast. Stöngin inn!

Húsið opnar kl. 20, húllumhæ byrjar kl. 21. Athugið: Ef miðar klárast í forsölu verður ekki selt inn við hurð.

Aldurstakmark 20 ára.