Tix.is

Um viðburðinn

Brian Wilson – Pet Sounds 50 ára afmæli

- Sérstakir gestir Al Jardine og Blondie Chaplin

Það er ekki á hverju degi sem okkur Íslendingum gefst tækifæri á að upplifa meistarann flytja meistaraverk sitt, en í september fáum við eitt slíkt tækifæri. Brian Wilson hefur stundum verið kallaður Mozart rokksins en tónlist hans er talin ein sú besta sem komið hefur fram í tónlistarsögu heimsins á síðustu árum. Verkið hans Pet Sounds sem í ár er 50 ára er talið eitt það besta í sögu rokksins og hefur fengið fjölda viðurkenninga. Paul McCartney hefur sagt að Pet Sounds hafi haft mikil áhrif á að Bítlarnir gerðu Sgt Pepper plötu sína, ári eftir aðPet Sounds kom út og hann hefur einnig sagt að uppáhaldslagið sitt sé God Only Knows. Roger Waters (Pink Floyd) segir að Pet Sounds hafi breytt öllu fyrir sig tónlistarlega séð. Tom Yorke (Radiohead) hefur sagt að hluti af plötunni OK Computer sé byggð á anda Pet Sounds og svona má lengi telja.

Það er mikill heiður að fá Brian Wilson ásamt hljómsveit í Hörpu í haust að flytja þetta snilldarverk íEldborg ásamt því að spila mörg vinsælustu lög Beach Boys. Ekki spillir fyrir að sérstakir gestir verða gömluBeach Boys félaga hans þeir Al Jardine og Blondie Chaplin.

Í boði verða VIP-miðar í mjög takmörkuðu magni og með kaupum á þeim fylgir möguleikinn á að fá að hitta Brian Wilson sjálfan. Sjá nánar hér að neðan.

VIP tilboð í tilefni 50 ára afmælis Pet Sounds – fundur með Brian Wilson kr. 64.990- ( með aðgöngumiða)

Innifalið:
Eitt frátekið sæti í fimm fremstu sætaröðunum.
Aðgangur á undan öðrum tónleikagestum
Fylgdarmaður á staðnum
Forgangur að varningi
Meet & Greet“ – Hitta og heilsa Brian Wilson.
Ein árituð 50 ára afmælislitógrafía (tölusett/takmarkað upplag)
Ein árituð nótnaskrá með hljómagangi, laglínum og texta á laginu „God Only Knows“
Ein árituð mynd úr hljóðveri frá upptökum á Pet Sounds.
Eitt sérhannað plastað VIP - minnismerki

VIP hljóðprufupakki í tilefni af 50 ára afmæli Pet Sounds Brian Wilsons kr. 34.490- (með aðgöngumiða)

Inniheldur:
Eitt frátekið sæti á góðum stað í sal
Aðgangur á undan öðrum tónleikagestum
Fylgdarmaður á staðnum
Forgangur að varningi
Aðgangur að hljóðprufu fyrir tónleika
Eitt steinprent í tilefni af 50 ára afmæli Pet Sounds (tölusett/takmarkað upplag, ÓÁRITAÐ)
Eitt Brian Wilson hljóðprufu – armband

Báðir pakkarnir einskorðast við eina tiltekna persónu. Ekki er hægt að breyta um nafn undir nokkrum kringumstæðum. Kaupandi mun fá sendan netpóst frá Warner Music Group u.þ.b. einni viku fyrir tónleikana með leiðbeiningum vegna fundarins með Brian Wilson (Meet & Greet). Tímasetningar vegna tónleikahalds gætu breyst vegna ófyrirséðra ástæðna. Sérhannað spjald er einungis minnismerki í tilefni af afmælinu. Það veitir ekki aðgang á tónleikana, VIP – svæði né baksviði. Allur varningur skal tekinn meðferðis að tónleikunum loknum.