Tix.is

Um viðburðinn

At Home in The World 

Andreas Koefod DK/ 2015/ 58 mín/ Heimildarmynd/ 7 ára.

At Home in the World er einlæg heimildarmynd um daglegt líf fimm flóttabarna í flóttamannaskóla danska Rauða Krossins.

Börnin koma frá ólíkum löndum og eru með ólíkan bakgrunn en þau hafa öll þurft að flýja heimili sín og komið til Danmerkur með þá von að geta hafið nýtt líf.

Heimildarmyndir Koefoed hafa verið valdar á alþjóðlegu heimildarmyndahátíðina í Amsterdam (IDFA) síðustu átta ár og þar af fjórum sinnum verið tilnefndar til verðlauna.

Tal: danska, arabíska  Texti: enska

Sýnishorn

Aðgangur er ókeypis.

Tryggðu þér frían miða á hér á tix, óbókaðir miðar við innganginn.

Norræn kvikmyndahátíð hefur verið haldin í Norræna húsinu síðan 2012.  Markmið hátíðarinnar er að  kynna breitt úrval  vandaðra kvikmynda frá Norðurlöndunum. Samstarfsaðilar hátíðarinnar eru sendiráð Norðurlandana á íslandi, AALTO Bistro og Bio Paradis.