Tix.is

Um viðburðinn

The Fencer 

Klaus Härö/ FIN/ 2015 / 110 mín / Drama/ 15 ára aldurstakmark

The Fencer, sem var framlag Finnlands til Óskarsins 2016, er byggð á sannsögulegum atburðum og segir sögu ungs manns, Endel Nelis, sem flytur frá Leningrad til Eistlands til að flýja Sovésku leynilögregluna. Hann sest að í litlum afskektum bæ og stofnar skylmingafélag fyrir börn.  Félagið færir honum miklar vinsældir og kyndir fljótt undir afbrýðisemi bæjarbúa. Nelis á sér von um að geta hafið nýtt líf en í Sovíetríkjunum er tortryggni allráðandi og fortíð hans gæti gert þær vonir að engu.

The Fencer er fyrsta finnska kvikmyndin sem bæði hefur verið tilnefnd til Golden Globe verðlaunanna og verið framlag til Óskarsins.

Sýnishorn

Allar myndirnar eru textaðar á ensku. Aðgangur er ókeypis. 

Dagskrá Kvikmyndahátíðar

Tryggðu þér frían miða á hér á tix, óbókaðir miðar við innganginn.

Norræn kvikmyndahátíð hefur verið haldin í Norræna húsinu síðan 2012.  Markmið hátíðarinnar er að  kynna breitt úrval  vandaðra kvikmynda frá Norðurlöndunum. Samstarfsaðilar hátíðarinnar eru sendiráð Norðurlandana á íslandi, AALTO Bistro og Bio Paradis.