Tix.is

Um viðburðinn

Albumm.is, X-ið 977 og Iceland Winter Games kynna heljarinnar tónleika í Sjallanum á Akureyri dagana 1. og 2. Apríl og óhætt er að segja að dagskráin er alls ekki af verri endanum.

Föstudagurinn 1. Apríl verður Reggae tónlistin í fyrirrúmi. Hljómsveitin Hjálmar og Reykjavík Soundsystem koma fram en sú fyrrnefnda ein vinsælasta hljómsveit landsins og þó víðar væri leitað! Hver þekkir ekki lög eins og „Ég vil fá mér kærustu“ og „Borgin“ svo fátt sé nefnt.

RVK Soundsystem er hópur plötusnúða sem spilar eingöngu Reggae, Dub og Dancehall tónlist en það eru mikil eðalmenni sem eru þar innanborðs.

Laugardagurinn 2. Apríl verður sannkölluð danstónlistarveisla og sérstakt White Partý!

Fram koma: Exos, Biggi Veira/GusGus, Thor/Thule Records og Dj Margeir.

Exos er einn vinsælasti Techno tónlistarmaður heims en hann hefur verið á tónleikaferðalagi um heiminn að undanförnu ásamt Techno dívunni Ninu Kraviz.

Biggi Veira er löngu orðinn goðsögn í danstónlistarheiminum en flestir kannast við kappann úr hljómsveitinni GusGus.

Thor þarf varla að kynna fyrir dansþyrstum landsmönnum en hann stofnaði plötuútgáfuna Thule Records sem sló rækilega í gegn á heimsvís.

Dj Margeir þarf ekki að kynna en hann er einn vinsælasti plötusnúður Íslands og þó víðar væri leitað.

Allir að mæta í einhverju hvítu en Sjallinn verður breyttur í alvöru danstónlistarklúbb með öllu tilheyrandi!

Best klædda parið fær 25.000 kr úttekt á barnum og best klæddi einstaklingurinn fær 25.000 kr inneignarkort frá Mohawks!

Fyrstu 200 fá fríann drykk báða dagana!

18. ára aldurstakmark.

Húsið opnar kl 23:30 – 04:00

Hér er linkur á facebook eventið:www.facebook.com/events