Tix.is

Um viðburðinn

Þjóðlagatónlistarhátíðin Reykjavík Folk Festival verður haldin í Gym og Tónik salnum í Kex Hostel við Skúlagötu dagana 10.-12. mars 2016. Dagskrá hátíðarinnar er ætlað að blanda saman þjóðlagatónlistarmönnum og -hljómsveitum á ólíkum aldri og frá ólíkum áttum innan þjóðlagatónlistarheimsins.

Hátíðin fer fram í notalegum húsakynnum Kex Hostels og verður ekkert til sparað við að skapa notalega og einlæga stemmningu og ógleymanlega tónlistarveislu fyrir alla unnendur þjóðlagatónlistar.

Þeir listamenn sem koma fram á hátíðinni í ár eru; Elín Ey, Valdimar Guðmundsson & Örn Eldjárn, Högni Egilsson, Ellen Krisjánsdóttir & Eyþór Gunnarsson, Ragnheiður Gröndal, Bangoura Band, Ingunn Huld og Skuggamyndir frá Býzans & sóley.

Nánari upplýsingar um dagskrá hátíðarinna er að finna á vefsíðu hennar; og á fésbókarsíðu hennar; facebook.com/reykjavikfolkfestival.

Styrktaraðilar hátíðarinnar eru; Ríkisútvarpið, Menntamálaráðuneytið, Kex Hostel.

Miðaverð á hátíðina er 3.000 kr fyrir stök kvöld en 8.000 kr fyrir passa sem gildir á öll 3 kvöldin.

Dagskrá hátíðarinnar hefst kl. 20 öll kvöld og lýkur kl. 23:00.