Tix.is

Um viðburðinn
 Tónar tvíblöðungar

Tónar tvíblöðunga er yfirskrift spennandi tónleika í 15:15 tónleikasyrpunni í Norræna húsinu næstkomandi sunnudag 28. febrúar kl. 15:15.

 Tvíblöðunga er ekki skordýrategund eins og margir gætu haldið heldur samheiti yfir óbó- og fagottleikara sem leika á tvöföld reyrblöð. Það eru tvíblöðungar blásaraoktettsins Hnúkaþeys, þau Peter Tompkins og Eydís Franzdóttir óbóleikarar og Kristín Mjöll Jakobsdóttir fagottleikari sem leika, ásamt Guðrúnu Óskarsdóttur semballeikara og Sigurði Halldórssyni sellóleikara, sjaldheyrt eyrnakonfekt frá barokktímanum: Tríósónötur eftir Jan Dismas Zelenka, Arcangelo Califano og Johann Fredrich Fasch auk einleiksverks fyrir selló eftir Domenico Gabrieli.

 Þetta eru tónleikar sem enginn ætti að láta framhjá sér fara.

Norræna húsið