Secret Solstice hátíðin kynnir Midnight Sun Boat Part sem verður haldið yfir hátíðarhelgina okkar 2016.
Farið verður frá hátíðarsvæði Secret Solstice að Reykjavíkurhöfn þar sem siglt verður frá Reykjavík út á Norður-Atlantshafið á slaginu 12 á miðnætti í átt að sjóndeildarhringnum.
Fram koma heimsklassaplötusnúðar sem halda partyínu gangandi langt framundir morgun og verða atriðin kynnt mjög bráðlega. Einungis 200 miðar verða seldir í þennan aukaviðburð á Secret Solstice 2016 og við mælum með að fólk tryggi sér miða fljótt á þennan einstaka viðburð.
Hver gestur fær 3 áfenga drykkir innifalið í verði og stendur valið á milli bjórs, cider og rauð/hvitvíns auk þess sem gestir fá vatn að kostnaðarlausu alla ferðina.
FERÐATILKYNNING: Rútur fara frá hátíðarsvæðinu á slaginu 23:00 á Laugardaginn 18.júní að Reykjavíkurhöfn þar sem gestir fara um borð í bátinn áður en siglingin hefst. Eftir siglinguna er það á eigin ábyrgð gesta að koma sér til baka frá Reykjavíkurhöfn.
ÖRYGGISTILKYNNING: Af öryggisástæðum mun engum gestum í annarlegu ástandi verða hleypt um borð í Midnight Sun Boat Party. Allir gestir fá 3 drykki með vali á bjór, cider eða rauð/hvítvíni í siglingunni en ekki er leyfilegt að neyta meira áfengis.