Tix.is

Um viðburðinn

Hljómsveitin Nýdönsk heldur tónleika á Nýdönskum dögum í völdum þéttbýliskjörnum nú í febrúar. Nýdanskir dagar hefjast með opinberri heimsókn þar sem bæjarstjórar verða sóttir heim, varaðir við hávaða og leystir út með dýrum gjöfum.

Á Nýdönskum dögum ræður fólk sinni dagskrá sjálft, en herlegheitin ná hámarki með tónleikum þar sem öll nýdönskustu lögin eru sungin og leikin í fúlustu alvöru og hæstu upplausn af hljómsveitinni Nýdönsk.