Tix.is

Um viðburðinn

UPPSELT Í HÖRPU: NÝ AUKASÝNING Í HÁSKÓLABÍÓI LAUGARDAGINN 5. MARS!

Einungis 800 miðar eru í boði á þessa sýningu í Háskólabíói 5. mars og aðeins er um eitt gott miðaverð að ræða: 6.990 kr. Eingöngu er selt í númeruð sæti.

Miðasala á þessa nýju sýningu hefst fimmtudaginn 21. janúar kl. 10 á Tix.is. Daginn áður, miðvikudaginn 20. janúar kl. 10, fer fram póstlistaforsala Senu. Að gefnu tilefni skal tekið fram að ekki er hægt að bæta við fleirri sýningum.

Jimmy Carr er breskur uppistandari, sjónvarpsmaður og leikari sem er þekktastur fyrir óviðjafnanlegan hlátur, hárfínan, kolsvartan húmor og vafasama brandara. Í síðustu ferð sinni til Íslands seldist upp á fjórar sýningar Carrs á örskotsstundu, mun færri komust að en vildu og áhorfendur lágu bókstaflega í hláturkrampa undir uppistandinu.

Jimmy hefur verið lýst sem mesta vinnuþjarknum í uppistandsbransanum. Sem er, þegar maður horfist í augu við staðreyndir, ekkert stórkostlegt afrek. Það er svolítið eins og að vera “hávaxnasti dvergurinn” eða “Heilbrigðasti Glasgowbúinn”. Sem sagt, ekkert frábært.

Nú ætlar Carr að kæta Íslendinga með brakandi ferskum bröndurum í glænýrri sýningu: Funny Business.

Veldu rétta svarið hér á eftir.

Sýningin verður:
a) Stútfull af bröndurum
b) Ruddaleg og móðgandi*
c) Frábær kvöldstund
d) Á góður verði; aðeins frá 6.990 kr. miðinn.**

Ef þú valdir a) b) c) eða d) þá var það rétt!

* Ef þú ert mjög móðgunargjarn. Ekki vera fífl.
** Sýningin er alls ekki við hæfi þeirra sem ekki hafa keypt miða.