Tix.is

Um viðburðinn

Armensk/Ameríska rokksveitin System Of A Down verður heiðruð þann 15.janúar 2016 á Gauknum.

S.O.A.D. hefur gefið út fimm breiðskífur og selt yfir um 40 milljón eintök. Hljómsveitin á ófáa slagara sem munu fá að heyrast á þessum tónleikum en dagskráin spannar lög frá farsælum ferli sveitarinnar sem hófst árið 1994 í Kaliforníu.

Sett hefur verið saman sérstök hljómsveit til að flytja efnið á heiðurstónleikunum og eru meðlimir gallharðir aðdáendur System Of A Down.

Hljómsveitin:
Söngur: Stefán Jakobsson
Gítar/Hljómborð: Franz Gunnarsson
Gítar: Hrafnkell Brimar Hallmundsson
Bassi/Söngur: Erla Stefánsdóttir
Trommur: Sverrir Páll Snorrason

Aldurstakmark 20 ára.