Tix.is

Um viðburðinn

5x5 Áskorunin er mót sem skiptist í 5 æfingabox, þar sem framkvæmt er eins margar umferðir (AMRAP) og hægt er af ákveðnum æfingum í 4 mínútur. Þá er einnar mínútu pása á milli boxa sem öll eru með sama fyrirkomulagi. Æfingarnar eru fjölbreyttar, allt frá æfingum með eigin líkamsþyngd, ketilbjölluæfingar, æfingar með sandpoka, lyftingastöng og róðravél. Keppnin er óhefðbundin að því leiti til að pásan milli boxa gefur rými til að ná púlsinum aðeins niður og því keyra af fullum krafti í næsta box. Mótið er gríðarlega skemmtilegt og spennandi.

Aldurstakmark: 18 ára (16 ára með skriflegu samþykki forráðamanns)