Tix.is

Um viðburðinn

Við kynnum með stolti Útgáfutónleika Öldu Dísar í Kaldalóni í Hörpu 3. desember. Fyrsta platan hennar HEIM er afrakstur samstarfs Öldu við strákana í StopWaitGo. Þau þræddu saman vangaveltum og upplifunum söngkonunnar síðastliðinna ára og úr varð 10 laga plata. Alda mun flytja alla plötuna í heild sinni með góðum gestum, rifja upp gamla takta úr Ísland Got Talent og aldrei að vita nema hún taki nokkur lög í anda aðventunnar. Á þessum tónleikum verður eitthvað fyrir alla, unga sem aldna!