Tix.is

Um viðburðinn

Olga Vocal Ensemble ætlar að syngja jólin inn í ár. Þetta verður í fyrsta skipti sem Olga heldur tónleika á Íslandi yfir jólahátíðina og hún getur ekki beðið að deila þeirri upplifun með ykkur. Olga mun flytja jólalög úr öllum áttum. Efnisskráin verður skemmtilega fjölbreytt og hentar fólki á öllum aldri.

Söngvarar:
Bjarni Guðmundsson - 1. tenór
Jonathan Ploeg - 2. tenór
Gulian van Nierop - Baritón
Pétur Oddbergur Heimisson - 1. bassi
Philip Barkhudarov - 2. bassi

Netsala:
2500 almennt verð
1500 fyrir nema, öryrkja og eldri borgara

Miðasala við hurðina:
3000 almennt verð
2000 fyrir nema, öryrkja og eldri borgara

Frítt fyrir 16 ára og yngri.

Allar Olgur fá frítt inn!

Olga og Ketill hlakka til að komast í jólaskapið með þér!