Tix.is

Um viðburðinn

Hið árlega Töfrakvöld HÍT verður haldið í Salnum í Kópavogi, miðvikudaginn 28. október nk. og hefst kl. 20:00. Húsið verður opnað kl. 19:30 og þá strax sýna töframenn víða um húsið, töfrabrögð í nálægð.

Aðalgestur sýningarinnar er enski töframaðurinn Chris Wood, sem hefur sýnt einstök töfrabrögð víða um heim í yfir 30 ár.

Einnig taka sjö íslenskir töframenn þátt í sýningunni, Einar einstaki, Jón Víðis, Kristinn Gauti, Arnúlfur og Kristinn & Sindri, kynnir verður Lalli töframaður. Að auki verða sýnd töfrabrögð í nálægð um allt húsið í hléi og eru það félagar í Hinu íslenska töframannagildi sem sjá um það. Töfrabrögð sem gerðast nánast í höndum sýningargesta.

Ekki missa af þessari töfrandi sýningu!