Upplifðu hinn sanna anda jólanna með Kristjáni Jóhannssyni og gestum er þeir flytja úrval ástkærra jólalaga í bland við ýmsar af helstu perlum óperusögunnar. Tónleikar Kristjáns eru nú haldnir í Eldborgarsal Hörpu í þriðja skiptið en þeir hafa notið gríðarlegra vinsælda og eru fastur liður í jólaundirbúningi margra tónlistarunnenda.
Tónleikarnir fara fram þann 6. desember kl. 20:00.
Með Kristjáni kemur fram sannkallað stórskotalið klassískrar tónlistar: Söngvararnir Dísella Lárusdóttir, Valgerður Guðnadóttir og Oddur Arnþór Jónsson ásamt Óperukórnum í Reykjavík og sinfóníuhljómsveit undir stjórn Garðars Cortes.
Saman kalla þau fram hinn kærleiksríka anda jólanna og koma þér í sannkallað hátíðarskap!