Tix.is

Um viðburðinn

Jogvan Hansen, Sigga Beinteins og Guðrún Gunnarsdóttir halda áfram á nýju ári með þessa vinsælu söngdagskrá sem gengið hefur fyrir fullu húsi í Salnum á þriðja ár.

Nú hafa þau endurnýjað stærsta hluta dagskrárinnar og bætt við mörgum lögum sem ekki heyrast oft sungin „live“ ,má þar nefna lög eins og: Í Rökkuró, Fjórir kátir þrestir, Án þín, Enn birtist mér í draumi ofl.

Ekki aðeins heyrum við þessi skemmtilegu og fallegu lög í flutningi frábærra söngvara heldur segja þau skemmtilegar sögur sem tengjast lögunum og sögur úr eigin ranni.

Með þeim Jogvani, Guðrúnu og Siggu leikur hljómsveit undir stjórn Karls Olgeirssonar.

Tryggið ykkur miða í tíma því þessir tónleikar seljast alltaf fljótt upp!