Tix.is

  • 19. - 21. júlí
Um viðburðinn

Listahátíð Samúels verður haldin að Brautarholti í Selárdal á vegum Félags
um listasafn Samúels helgina 19.-21. júlí. Guðni Rúnar Agnarsson verður með
athöfn í kirkjunni á föstudagskvöldinu og Elfar Logi Hannesson verður þá með
leiðsögn að Uppsölum. Margir listamenn munu taka þátt. Krummi Björgvins,
Skúli mennski og fleiri tónlistarmenn koma fram í kirkjunni auk þess sem Einar
Már Guðmundsson verður með sögustund og Kraftgalli verður með dj-sett.
Loji Höskuldsson og Þorvaldur Jónsson opna
sýningu í listasafninu. Á þessu ári eru 140 ár frá fæðingu Samúels og verða
lesnar upp nokkrar sögur sem birtast í bókinni Steyptum draumum sem fjallar
um líf og list Samúels. Sýnd verður samnefnd kvikmynd Kára G. Schram og
Ólafs J. Engilbertssonar. Boðið verður upp á leiðsögn um verk Samúels, bæði
höggmyndir og málverk og Gerhard König segir frá viðgerðum á verkunum. Á
laugardagskvöldinu verður brekkusöngur við ströndina. Boðið verður upp á
gönguferðir með leiðsögn í Verdali og Vatnahvilft. Flugdrekasmiðja fyrir
fjölskyldur verður einnig í boði. Aðgangur er kr. 12.000 og er innifalin súpa á
föstudagskvöldinu og ljúffengur kvöldverður á laugardagskvöldinu.