Tix.is

Um viðburðinn

Orgelsumar í Hallgrímskirkju 2024
Sunnudagur 18. ágúst kl. 17.00 - 18.00
Kitty Kovács, orgel Landakirkja Vestmannaeyjum
Aðgangseyrir 3.700 kr.

Kitty Kovács er fædd í Gyor í Ungverjalandi árið 1980 og útskrifaðist árið 2003 frá tónlistardeild Széchenyi István háskólans þar í borg með diplómu í píanó- og kammertónlist.
Eftir útskriftina starfaði hún sem meðleikari í Gyor og lagði síðan stund á meðleikaranám við Ferenc Liszt Akademíuna í Búdapest. Á námsárum sínum vann hún í píanókeppnum, m.a. árið 1997 í Salt Lake City og árið 2000 varð hún í 3. sæti í Chopin keppninni. Kitty kom til Íslands árið 2006 og hefur starfað sem píanókennari og organisti. Frá árinu 2011 hefur hún verið organisti við Landakirkju í Vestmannaeyjum og kennari við Tónlistarskóla Vestmannaeyja. Frá árinu 2012 hefur Kitty stundað orgelnám við Tónskóla Þjóðkirkjunnar og vorið 2017 lauk hún kantorsnámi þaðan. Ári síðar lauk hún þaðan námi í einleiksáfanga.