Tix.is

  • 30. maí - kl. 20:00
Miðaverð:4.990 kr.
Um viðburðinn

Á þessum einstaka tónlistarviðburði mun munnhörpuleikarinn Þorleifur Gaukur Davíðsson koma fram ásamt Davíð Þór Jónssyni og Skúla Sverrissyni og flytja tónlist af væntanlegri plötu sinni.

Einnig verður stuttmyndin Stages (Sorgarferli) sýnd en hún fékk nýlega Jury Prize á RIFF hátíðinni sem besta íslenska stuttmyndin.

---------

Þorleifur Gaukur Davíðsson hefur verið áberandi síðustu ár á Íslandi og má heyra hann á upptökum með Kaleo, Laufey, Mugison og Bríet. Hann spilar í allt frá félagsheimilum úti á landi til stærstu tónleikahalla heims yfir og yfir í lítil spunarými. Þorleifur Gaukur reynir alltaf að nálgast tónlistina frá tærleika og næmni. Hvert skipti er einstakt og kemur hann með fersk eyru í hvert sinn. Hann velur sér hljóðfæri sem geta teygt  tilfinningar manns og með þeim togar hann hlustandendur inn og dregur þá með í vegferð. Davíðsson er hans frumóp. Hann tekur með sér reynslu úr öllum þessum heimum og fær með sér sínar stærstu hetjur og vini, Davíð Þór Jónsson og Skúla Sverrisson.

-   

Davíð Þór er meðal fremstu og fjölhæfustu tónlistarmanna landsins, jafnvígur á píanóleik, spuna, tónsmíðar og hljómsveitarstjórn auk þess sem hann leikur á ógrynni hljóðfæra. Hann hefur leikið á tónlistarhátíðum víða um heim, gert tónlist og hljóðmyndir fyrir fjölda sviðsverka, kvikmyndir, útvarpsverk og sjónvarpsþætti og starfað náið með fjölda listamanna úr ólíkum geirum, má þar nefna náið samstarf hans og Ragnars Kjartanssonar. Davíð Þór hefur hlotið Íslensku tónlistarverðlaunin og Grímuverðlaunin sem og alþjóðleg verðlaun fyrir kvikmyndatónlistina úr Hross í oss og Kona fer í stríð. Davíð Þór var staðarlistamaður Salarins árið 2023.

-

Skúli Sverrisson hefur verið í framvarðasveit íslenskra tónlistarmanna um árabil og hefur á síðustu áratugum byggt upp einstakan feril sem samanstendur af tónsmíðum og iðkun eigin tónlistar annars vegar og hins vegar margbreytilegu samstarfi við breiðan hóp alþjóðlegra listamanna. Mætti þar nefna Laurie Anderson, Blonde Redehead, Wadada Leo Smith, Derek Bailey, Lou Reed, Jon Hassel, David Sylvian, Arto Lindsay, Ryuichi Sakamoto, Jóhann Jóhannsson, Hildi Guðnadóttur. Sidsel Endresen, Víking Heiðar Ólafsson, Megas og Ólöfu Arnalds. Skúli hefur verið flytjandi á yfir 100 hljómplötum og leikið vítt og breitt um heiminn. Hann hefur unnið sjö sinnum til Íslensku tónlistarverðlaunanna og tvisvar sinnum hlotið tilnefningu til Tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs.