Tix.is

Um viðburðinn

Þann 7. maí næstkomandi kemur einstakur hópur listafólks saman í Háskólabíói til að sýna samstöðu með þeim sem búa nú við hörmulegar aðstæður á Gaza. Þetta kvöld sameinast listafólk og áhorfendur sem hafa öll það markmið að aðstoða þau sem þurfa á hjálp að halda og tónlist verður notuð til að hvetja fólk til að veita stuðning, ásamt því að óska eftir breytingum og friði, umfram allt. Allur ágóði rennur til mannúðaraðstoðar á Gaza, þar sem þörfin er mest, með aðstoð frá Rauða krossinum og UNICEF á Íslandi.

Þegar þú kaupir miða býðst þér einnig að veita auka fjárframlag til að styrkja mannúðaraðstoðina enn frekar.

Tónlistarfólk sem koma fram eru

Ásgeir Trausti - GDRN - Emmsjé Gauti
Una Torfa - Ellen Kristjánsdóttir - Eyþór Gunnarsson
Systur - Sigríður Thorlacius - Pálmi Gunnarsson - TÁR
Svala Björgvins - Friðrik Dór


Kynnir er Íris Tanja Flygenring

Táknmálstúlkur er Margrét Baldursdóttir

Miðaverð er 4000 kr


Einnig er hægt að styrkja mannúðaraðstoðina HÉR