Tix.is

Um viðburðinn

Kvennakórinn Léttsveit Reykjavíkur fagnar vorinu með heimsókn til Vestmannaeyja.  

Á tónleikum í Höllinni mun Léttsveitin ásamt hljómsveit flytja dægurperlur eftir íslenska karlhöfunda undir stjórn Gísla Magna.
Gestasöngvari er Páll Óskar Hjálmtýsson.

Hljómsveitina skipa:
Arnhildur Valgarðsdóttir á píanó
Pétur Valgarð Pétursson á gítar
Gunnar Hrafnsson á bassa
Diddi Guðna á trommur.


Forsala miða er til kl. 16 á tónleikadegi en húsið opnar 16.30 og er hægt að fá miða við inngang.


Hlökkum til að sjá ykkur



Höllin í Eyjum