Tix.is

Um viðburðinn

Stöllurnar Hallveig Rúnarsdóttir sópransöngkona og Hrönn Þráinsdóttir píanóleikari dýfa sér í laug íslenskrar leikhústónlistar í tónleikaröðinni Á Ljúflingshól á ferðum sínum um landið í ár.

Fyrstu tónleikarnir verða haldnir í Hömrum, sal Tónlistarskólans á Ísafirði þann 21. apríl næstkomandi kl 17. Miðaverð er 3000 krónur og má kaupa miða við inngang eða á tix.is

Á tónleikunum verður farið vítt og breitt um íslenska leikhústónlistarsögu og flutt lög eftir mörg af okkar ástælustu leikhústónlistarhöfundum, svo sem Hjálmar H. Ragnarsson, Jón Ásgeirsson, Atla Heimi Sveinsson og bræðurna Jón Múla og Jónas Árnasyni.

Hallveig og Hrönn þarf vart að kynna, þær hafa verið áberandi í íslensku tónlistarlífi undanfarna áratugi og hafa starfað saman bæði hérlendis og erlendis frá árinu 1998.

Framundan eru tónleikar um landið ásamt tónleikaferðum til Kanada og Kína næsta vetur.