Tix.is

  • 23. maí - kl. 20:00
Miðaverð:2.900 kr.
Um viðburðinn

Vortónleikar Rokkkórsins verða að þessu sinni 23. Maí í Hlégarði.  

Að venju býður kórinn upp á magnaða kvöldskemmtun fyrir alla sem hafa ánægju af kraftmiklum og vönduðum söng. Á þessum tónleikum mun kórinn syngja töluvert meira af popp tónlist en hann hefur áður gert en rokkið verður þó ekki langt undan. Flutt verða lög sem m.a. Lady Gaga, Ný dönsk, 200.000 Naglbítar, Pink, Jet black Joe, Ásgeir Trausti og Abba hafa gert vinsæl. Rokkkór Íslands er níu ára gamall og fer heldur óhefðbundnari leiðir en gengur og gerist í kórsöng. Kórinn skipar um 50 söngvara sem allir eiga það sameiginlegt að hafa mikinn áhuga á popp-, rokk- og dægurlagasöng. Útkoman er kraftmikill og algjörlega einstakur hljómur sem er klárlega nýr sinnar tegundar hér á landi. Stjórnandi kórsins er Matthías V. Baldursson. Með kórnum leika þeir Stefán H. Henrýsson á pianó og Hálfdán Helgi Matthíasson á slagverk. Sérstakir gestir á þessum tónleikum er dúettinn VÆB. 

Strákarnir í VÆB komu eins og stormsveipur inn í íslenskt tónlistarlíf með lagið sitt “Bíómynd” sem þeir fluttu í Söngvakeppni sjónvarpsins 2024. Þeir bræður hafa verið öflugir í lagasmíðum og endurhljóðblöndun (remix) frá því þeir stofnuðu hljómsveitina haustið 2022. Þeir hafa gefið út lög með Herra Hnetusmjör, Inga Bauer, Lil Curly, Villa Neto, Áslaugu Helgu og Rokkkór Íslands svo eitthvað sé nefnt. VÆB eru þekktir fyrir líflega sviðsframkomu og bullandi stemningu og er það sannur heiður að fá þá sem gesti með kórnum þetta kvöld.