Tix.is

Um viðburðinn

ARVO PÄRT – STABAT MATER
Hildigunnur Rúnarsdóttir · Elín Gunnlaugsdóttir · Tryggvi M. Baldvinsson

Fimmtudagur 28. mars kl. 16
Jóna G. Kolbrúnardóttir sópran
Guja Sandholt mezzósópran
Þorsteinn Freyr Sigurðsson tenór
Unnsteinn Árnason bassi
Hlíf Sigurjónsdóttir fiðla
Martin Frewer lágfiðla
Þórdís Gerður Jónsdóttir selló
Ragnheiður Ingunn Jóhannsdóttir stjórnandi

Stabat mater eftir eistneska tónskáldið Arvo Pärt (1935) er miðpunktur tónleikanna í dag en það var samið árið 1985, að beiðni Alban Berg Foundation. Upphaflega skrifaði Pärt verkið fyrir þrjá einsöngvara og strengjatríó en síðar útsetti hann það einnig fyrir kór og hljómsveit. Tónlistin er samin við hina frægu Maríubæn sem er sennilega eftir miðaldamunkinn Jacopo da Todi (1230-1306) sem fjölmörg önnur tónskáld, til dæmis Vivaldi, Rossini, Haydn, Pergolesi og Dvorák hafa einnig tónsett. Textinn lýsir sorgum Maríu Guðsmóður er hún stendur við kross Jesú Krists og fylgist með þjáningum hans og dauða. Ljóðmælandinn biður um að fá að deila með henni byrðum þjáningarinnar og fá að lokum að dvelja í paradís.

Verkið er samið í mínímalíska tintinnabuli-stílnum sem Arvo Pärt þróaði og er frægur fyrir. Hægt er að þýða orðið tintinnabuli sem „litlar bjöllur“ og þó svo að reglur stílsins séu strangar, er útkoman einstaklega tær. Tónverk Arvo Pärts hafa farið sigurför um heiminn á undanförnum áratugum og hefur hann verið mest flutta núlifandi tónskáld heims um árabil.

Á tónleikunum er stutta kammerverkið, Es sang vor langen Jahren, eftir Pärt einnig flutt en það er fyrir rödd, fiðlu og víólu. Ljóðið er eftir þýsk-rómantíska skáldið Clemens Brentano (1778-1842) og fjallar um sársaukafulla þrá eftir horfnum ástvini. Önnur verk á efnisskránni eru sálmar og söngljóð eftir íslensk tónskáld sem hvert um sig kallast á einhvern hátt við þema Stabat mater og trúna.