Tix.is

Um viðburðinn

Útskriftarnemar leikarabrautar LHÍ takast á við eitt af ástsælustu verkum leikbókmenntanna, Kirsuberjagarðinn, eftir Anton Tsjekhov í leikstjórn Eddu Bjargar Eyjólfsdóttur.

Þetta dásamlega verk fellur aldrei úr gildi og á alltaf erindi við okkur sama hvaða tímar eru. Ljubov Andreévna og hennar fjölskylda og fylgdarlið koma heim á fallega ættaróðalið með kirsuberjagarðinum sem á að fara á uppboð vegna vanrækslu þeirra og eyðslu.
Hér er fjallað um mennskuna, um manneskjuna í allri sinni dásamlegu, ófullkomnu og grátbroslegu dýrð. Allt tekur enda í þessum heimi og allt er breytingum háð, en óttinn við breytingar getur verið lamandi.  Kirsuberjagarðurinn býr í raun í hjörtum okkar allra, það eina sem við þurfum að gera er að hugsa vel um hann og elska.

HLUTVERK

Birta Sólveig Söring Þórisdóttir / Ljúbov Andreévna Ranévskaja. Óðalseigandi
Hólmfríður Hafliðadóttir / Anja dóttir hennar
Berglind Alda Ástþórsdóttir / Varja, uppeldisdóttir hennar
Selma Rán Lima / Dúnjasha, vinnukona
Gunnur Martinsdóttir Schlüter / Símjonova – Píshjik
Gréta Arnarsdóttir / Sjarlotta Ívanovna, heimiliskennari
Jón Bjarni Ísaksson / Leoníd Andreévítsj Gajev bróðir Ranévskaju
Mikael Emil Kaaber / Firs, gamall þjónn & Jasha, ungur þjónn
Nikulás Hansen Daðason / Érmolaj Aleksejvitsj Lopakhín kaupmaður
Jakob van Oosterhout / Pjotr Sergejvitsj Trofimov stúdent & Semjon Pantelejevevítsj Epikhodov skrifstofumaður.

AÐSTANDENDUR:
Leikstjóri: Edda Björg Eyjólfsdóttir
Leikmynd og búningar: María Th. Ólafsdóttir
Lýsing: Ólafur Ágúst Stefánsson
Tónlist: Peter J. Östergaard
Hljómsveit: Lindong Lin söngur, Yuichi Yoshimoto á hljómborði/píanó.
Leikmyndasmíði: Egill Ingibergsson
Ljósmyndir: Leifur Wilberg Orrason