Tix.is

Um viðburðinn

Sólrisuleikrit Menntaskólans á Ísafirði hefur lengi verið stór partur af menningarlífinu á Vestfjörðum. Í ár mun leikfélag MÍ setja upp klassíska barnaleikritið Dýrin í Hálsaskógi sem allir ættu að þekkja, nemendur skólans hafa unnið hörðum höndum að því að setja upp þessa sýningu og erum við mjög spennt að sýna bæjarbúum afraksturinn.