Tix.is

Um viðburðinn

Ný Söngleikjadeild Söngskólans í Reykjavík kynnir með stolti söngleikinn Bugsy Malone í Þjóðleikhúsinu í apríl 2024.

Kvikmyndin Bugsy Malone, sem hóf feril Jodie Foster og Scott Baio er hér orðin að stórskemmtilegri leikhúsupplifun í þessari endurgerð hinnar alræmdu sögu í frábærri þýðingu Davíðs Þórs Jónssonar. Tímabilið eru bannárin í New York, borg fullri af mafíósum, sýningarstúlkum og draumóramönnum. Keppinautarnir og glæpaforingjarnir Fat Sam og Dandy Dan eiga í miklum deilum. Dandy Dan hefur náð yfirhöndinni og nú eru Fat Sam og gengi hans í virkilegum vandræðum!
Inn kemur Bugsy Malone, peningalaus hnefaleikakappi en með eindæmum ágætur strákur. Það eina sem Bugsy vill í raun og veru gera er að eyða tíma með nýju ástinni sinni, Blousey. En mun hann geta staðist tælandi söngkonuna Tallulah og haldið sig fjarri vandræðum nógu lengi til að hjálpa Fat Sam
að verja viðskipti sín...?

Bugsy Malone er fjörugur söngleikur, stútfullur af þekktum lögum frá Óskarsverðlaunahafanum Paul Williams, þar á meðal My Name is Tallulah, You Give a Little Love og Fat Sam's Grand Slam.

Leikstjórn er í höndum Níelsar Thibaud Girerd.
Danshöfundur er Júlía Kolbrún Sigurðardóttir og tónlistarstjóri er Sigurður Helgi.
Hljóðhönnun: Þórður Gunnar Þorvaldsson.
Ljósahönnun: Níels Thibaud Girerd og Hákon Hjartarson.
Tæknimaður: Heimir Bergmann.
Þýðing: Davíð Þór Jónsson.
Deildarstjórar söngleikjadeildar eru Valgerður Guðnadóttir og Garðar Thór Cortes.

Leikendur:
Bugsy Malone - Óskar Snorri Óskarsson
Blousey Brown - Dagbjört Ósk Jóhannsdóttir
Tallulah - Svala Norðdahl
Sammi feiti - Tanja Líf Traustadóttir
Danni fíni - Guðrún Margrét Halldórsdóttir
Fizzy - Sigríður Sól Ársælsdóttir
Bronx Kalli, Jói í búrinu o.fl. hlutverk - Birkir Tjörvi Pálsson
Lena Marelli o.fl. hlutverk - Anna Birta Lionaraki
Picket, barþjónninn o.fl. hlutverk - Lára Þorsteinsdóttir
Loretta o.fl. hlutverk - Olga María Rúnarsdóttir
Tillí o.fl. hlutverk - Emilie Anne Jóhannsdóttir
Smolsky lögregluforingi o.fl. hlutverk - Þórdís Inga Ingólfsdóttir
O’Dreary lögreglufulltrúi o.fl. hlutverk - Gísella Hannesdóttir
Dúlli, Teningur o.fl. hlutverk - Bjarni Freyr Gunnarsson
Hnúi, Breiður o.fl. hlutverk - Hanna Tara Björnsdóttir
Lúlli, Kátur o.fl. hlutverk - Þórunn Eva Yngvadóttir
Angelo, Benni Li o.fl. hlutverk - Finnbjörn Hjartarsson

Hljómsveit:
Saxafónn / klarinet – Haukur Gröndal
Básúna – Samúel J. Samúelsson
Trompet – Snorri Sigurðarson
Gítar – Ásgeir Ásgeirsson
Kontrabassi – Þorgrímur Jónsson
Trommur – Erik Qvik
Píanó – Sigurður Helgi