Tix.is

Um viðburðinn

Við endurtökum leikinn síðan í fyrra og keyrum upp stuðið fyrir páskana á Ísafirði með 80's veislu á skírdag 28. mars í Edinborgarhúsinu. Sem fyrr ráðumst við ekki á garðinn þar sem hann er lægstur, því flutt verða lög eftir Cutting Crew, AC/DC, Supertramp, Gary Moore, Heart, Bon Jovi og fleiri.

Húsið opnar kl. 20:00 og tónleikarnir hefjast kl. 21:00. Miðaverð er 5.900 kr.

Fram koma:
Simbi Hjálmarsson, söngur
Hjördís Þráinsdóttir, söngur
Ylfa Mist, söngur
Eva Alfreðsdóttir, söngur
Stefán Baldursson, gítar
Alfreð Erlingsson, hljómborð
Smári Alfreðsson, saxófónn og hljóðgervlar
Þorsteinn Bragason, bassi
Haraldur Ringsted, trommur


Vinsamlegast kaupið miða á hjólastólasvæði með því að senda póst á info@tix.is.
Frítt fyrir fylgdarmenn.